Aflveðrun er til dæmis frostveðrun. Frostveðrun verður þegar vatn kemst inn í sprungur í bergi og frýs þar. Þegar vatnið frýs þenst það út og sprengir ysta lagið á berginu sem molnar. Sólsprenging verður við snögg hitabrigði, til dæmis þegar brennheit sólin skýn á berg eftir kalda nótt. Við þennan snögga hitamun myndast spenna í berginu og það getur sprungið.