Efnaverðun verður eftir að berg hefur brotnað niður vegna frostveðrunar og sólsprengingar. Efnaveðrun er þegar bergið brotnar ennþá meira niður vegna efna sem eru í náttúrunni. Þessi efni eru t.d. ammoníak, klórsambönd og ýmis konar sýrur eins og kolsýra sem finnst í regnvatni og grunnvatni.