Útræn öfl eru öfl sem vinna að því að brjóta niður yfirborð jarðar. Það sem kemur útrænum öflum af stað er orkan sem kemur frá sólinni í formi sólgeislunar. Útrænu öflin eiga það sameiginlegt að rífa niður landið með hjálp þyngdaraflsins og færist efnið niður fyrir sjávarmál.