Molnun og tæring bergs nefnist veðrun. Vanalega verða bergmylsnur og uppleyst efni ekki lengi kyrr á veðrunarstaðnum heldur flytjast þau burt t.d. með vindi, vatni, jöklum og/eða verða fyrir áhrifum þyngdaraflsins. Rennandi vatn er það útræna afl sem mótar yfirborð jarðar hvað mest vegna hinna eilífu hringrásar vatns. Rennandi vatn ber með sér veðrað efni.